Hentar einstaklingum, húsfélögum og fyrirtækjum sem vilja alhliðaþjónustu við að koma fasteignum sínum í topp stand. Hver, hvað kostar og hvenær - við svörum öllum þeim spurningum.
Kostnaðar- og framkvæmdaráætlun
Kostnaðar- og framkvæmdaráætlun við endurbætur á fasteign. Frábær þjónusta til að vita hvað raunverulega kostar að skipta t.d. um þak á blokk.
Eftirlit
Ég sé um eftirlit til að tryggja að endurbætur séu framkvæmdar rétt af verktökum, eftir tímaáætlun og eftir kostnaðaráætlun.
Burðarþolshönnun
Ég tek að mér burðarþolshönnun á öllum tegundum af mannvirkjum. Ég bý yfir um 15 ára reynslu við útreikning burðarþols í nýbyggingum, viðbyggingum, eða breytingum á núverandi burðarþoli
Framkvæmdarráðgjöf og rekstur
Viltu fá tímalínu fyrir fasteignina þína svo að þú getur skipulagt t.d. hússjóð eða sparnað til að mæta viðhaldi á næstu árum? Hvort er betra að byrja á þakinu eða gluggunum?
Skýrslu- og matsgerðir
Ég útbý skýrslur og matsgerðir við t.d. kaup á fasteignum. Þar færð þú nákvæmt yfirlit yfir ástand fasteignarinnar.
Hafa samband
Sendu á mig skilaboð með því verki sem þú hefur í huga. Gott er að hafa heimilisfang og stutta lýsingu á verkefninu.